Kvískerjasjóður var stofnaður 15. janúar 2003 af Umhverfisráðuneytinu til heiðurs Kvískerjasystkinum fyrir framlag þeirra til öflunar þekkingar og rannsókna á náttúru og sögu Austur-Skaftafellssýslu. Systkinin á Kvískerjum voru og eru einstök í sinni röð. Á fræðisviðinu urðu þau sín eigin Akademía svo annálað þykir.
Kvísker voru með afskekktari bæjum á landinu, en með bættum samgöngum og fjarskiptum hefur sú einangrun verið rofin. Kvískerjasjóði er ætlað að stuðla að því að framhald verði á því umfangsmikla fræða- og rannsóknarstarfi sem stundað hefur verið á Kvískerjum undanfarna áratugi.
Engin úthlutun úr Kvískerjasjóði 2010
Stjórn Kvískerjasjóðs hefur ákveðið að úthluta ekki styrkjum úr sjóðnum í ár heldur mun sjóðurinn ásamt Sveitarfélaginu Hornafirði standa fyrir málþingi þar sem styrkþegum undanfarinna ára gefst kostur á að kynna rannsóknarverkefni sín.
Málþingið átti að vera að Smyrlabjörgum 17. apríl sl. en vegna gossins í Eyjafjallajökli var því frestað til hausts. Nánari upplýsingar um dagsetningar og dagskrá málþingsins munu birtast hér síðar.

